Matvælaráðherra leggur til að um borð í hvalveiðiskipum verði dýraverndarfulltrúi sem á að mynda veiðarnar og halda skrá yfir þær. Þessum gögnum eigi að koma til eftirlitsdýralæknis eftir hverja veiðiferð.
Drög að reglugerð um þetta hafa verið birt á Samráðsgátt stjórnvalda og umsagnafrestur er til 22. Júlí.
„Skipstjórar hvalveiðiskipa skulu tilnefna dýravelferðarfulltrúa úr áhöfn fyrir hvert skip og skal hann bera ábyrgð á því að rétt sé staðið að velferð hvala við veiðarnar. Dýravelferðarfulltrúi skal ekki vera sá sami og beitir skutli,“ segir í drögunum.
„Dýravelferðarfulltrúar skulu sækja námskeið sem samþykkt skal vera af Matvælastofnun. Slíkt námskeið skal að lágmarki vera fræðsla um virkni sprengiskutuls, beitingu hans og beitingu skotvopna. Velferðarfulltrúi skal halda skrá yfir allar aðgerðir er varða veiðarnar, mynda þær á myndband og skrá þær niður. Öllum gögnum sem velferðarfulltrúi áhafnar hvalveiðiskips safnar saman skal komið til eftirlitsdýralæknis eftir hverja veiðiferð.“