Eftirlitsmenn frá varðskipinu Tý fóru síðastliðinn sunnudag til eftirlits um borð í farþegabát austur af Rifi.
„Við reglubundna athugun kom í ljós að tveir áhafnarliðar voru ekki lögskráðir og enginn í áhöfninni var með réttindi til að gegna stöðu vélstjóra. Farþegabáturinn fór sömuleiðis um 8 sjómílur út fyrir farsvið sitt,“ segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni .
„Varðskipsmenn fylgdu bátnum til hafnar og töldu farþega um borð. Talningin leiddi í ljós að alls voru 40 farþegar um borð í bátnum auk 4 manna áhafnar en báturinn hafði einungis farþegaleyfi fyrir 30.“
Skipstjórans bíður kæra vegna málsins.
Landhelgisgæslan segist líta málið alvarlegum augum. „Um borð voru of margir farþegar, lögskráningu áhafnar var ábótavant og enginn hafði réttindi til að gegna stöðu vélstjóra.“