Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 101 milljarði króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2010 samanborið við rúma 86 milljarða á sama tímabili árið 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 17,8% á milli ára.
Aflaverðmæti botnfisks var í lok september orðið 71 milljarð og jókst um 19% frá sama tíma árið 2009 þegar aflaverðmætið nam 59 milljörðum.
Verðmæti þorskafla var um 33,3 milljarðar og jókst um 27% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 12 milljörðum og jókst um 2% milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 8,6 milljörðum, sem er 22% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 34% milli ára og nam 6,5 milljörðum á fyrstu níu mánuðum ársins 2010.
Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 7,5 milljörðum króna í janúar til september 2010, sem er 5% samdráttur frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 21% milli ára og nam 21 milljarði.
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 41 milljarði króna og jókst um 24% frá árinu 2009. Aflaverðmæti sjófrystingar voru rúmir 37 milljarðar, sem er 27% aukning milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 33,5% milli ára og var um 15 milljarðar.
Sjá nánar á vef Hagstofunnar, HÉR.