Matís hefur tekið saman „Hugtakasafn fiskiðnaðarins“ og birt það á heimasíðu sinni. ‚i safninu eru ýmis hugtök úr fiskiðnaðinum og gefur þeim skýrari merkingu. Þetta hefur verið reynt að gera bæði með orðum og myndum. Safnið var upphaflega unnið í tengslum við verkefnið „Aukin verðmæti gagna.“
Tollskráin inniheldur yfir 100 hugtök, sum torskilin og önnur ekki notuð í réttu samhengi. Ítrekað kemur fram misskilningur í flokkun og vörulýsingum vegna þessa. Hugtakasafnið getur því tvímælalaust gagnast við gerð vörulýsinga í tollskrá og í reglugerðar- og lagasmíðum hins opinbera, einnig getur það gert samskipti milli viðskiptaaðila markvissari. Hugtakasafn þetta nýtist einnig starfsfólki í sjávarútvegi, við gerð vörulýsinga og annarra samskipta þar sem hægt verður að vísa í hugtakasafnið sem heimild, segir á vef Matís.
Hugtakasafnið má nálgast hér .