Kolmunninn er kominn inn í alþjóðlega hafsvæðið vestur af Írlandi. Hoffellið er á heimleið þaðan með 1600 tonn af kolmunna, fyrsta íslenska skipið á landleið á vertíðinni.
„Hoffell SU 80 hefur verið á kolmunnaveiðum á alþjóðlegu hafsvæði vestur af Írlandi undanfarna daga,“ segir á vef Loðnuvinslunnar . „Skipið er nú lagt af stað með fullfermi áleiðis heim á Fáskrúðsðfjörð. Þetta verður væntanlega fyrsta kolmunnalöndun ársins meðal íslenskra skipa. Siglingin er löng, 680 mílur og skipið því ekki væntanlegt fyrr en á föstudag.“