Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að Ísland taki sér óbreytta hlutdeild í makrílveiðunum á næsta ári, að teknu tilliti til aukningar í ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknarráðsins (ICES). Ísland mun jafnframt beina því til hinna strandríkjanna að taka tillit til þessa við kvótaákvarðanir sínar með það í huga að heildarveiðar fari ekki fram úr vísindalegri ráðgjöf.
Á lokafundi strandríkjanna fjögurra sem aðild eiga að makrílveiðum í NA Atlantshafi varð ljóst að ekki næst samkomulag um hlutdeild Íslands í makrílveiðum næsta árs. Fundurinn var haldinn í Osló dagana 25. – 26. nóvember með þátttöku ESB, Noregs, Færeyja og Íslands en Rússland átti þar áheyrnarfulltrúa.
Í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu segir ennfremur:
,,Framundan er röð tvíhliða viðræðna milli ESB og Noregs, ESB og Færeyja og Noregs og Færeyja um fiskveiðiheimildir. Gert mun ráð fyrir því að aðilarnir þrír fundi einhvern tíma í þarnæstu viku um hlutdeild Færeyja í makrílveiðum. Þá skýrist væntanlega endanlega, hvort samkomulag tekst milli þessara þriggja aðila. Búast má við að ESB og Noregur bíði með að taka ákvörðun um eigin makrílveiðar þangað til.
Á tvíhliða fundi Íslands og Rússlands, sem var áheyrnaraðili á fundinum, kom fram að Rússar hyggjast, eins og á þessu ári, ákvarða sér hlutdeild fyrir næsta ár sem nemur 5-6% af heildaraflanum. Rússar hafa veitt makríl á alþjóðlega hafsvæðinu (Síldarsmugunni) en einnig haft veiðiheimildir innan færeysku lögsögunnar.
Þegar ESB og Noregur, og hugsanlega Færeyjar, hafa samið eða tekið ákvarðanir um sínar aflaheimildir gefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið út viðeigandi reglugerð. Þar með verða aflaheimild ársins í tonnum talið fastsett m.t.t. heildarveiði af stofninum.
Óháð öðru verða þau 8.000 tonn, sem ekki veiddust af kvótanum á þessu ári, færð yfir á næsta ár og koma ekki til frádráttar á heildaraflaheimild næsta árs.”