„Hið opinbera“ (ríki og sveitarfélag) tekur til sín 41,5% af verðmætasköpun Vinnslustöðvarinnar (VSV) umfram almennan rekstrarkostnað og fjármagnskostnað. Hlutur launafólks fyrirtækisins er 35,5%, hluthafanna 15% og lífeyrissjóða 8%.
Sagt á annan hátt: Ríki/sveitarfélag fá að jafnaði samtals í sinn hlut sem svarar til nær 700 þúsund króna á mánuði af verðmætasköpun hvers einasta starfsmanns VSV.
Svo segir í frétt á vef Vinnslustöðvarinnar. Þar segir ennfremur. „Í þjóðfélagsumræðunni er því oft staðfastlega haldið fram að sjávarútvegur landsmanna skili litlu til samfélagsins og sé jafnvel fremur þiggjandi en veitandi í þeim efnum! Skattasporið sýnir glöggt hve fráleit slík umræða er og víðs fjarri veruleikanum.“
Sjá nánar á vef Vinnslustöðvarinnar.