Í nýliðnum júní voru seld alls 2.408 tonn af þorski á fiskmörkuðunum. Langmest var þorskur frá handfærabátum, 1.371 tonn eða 57% af heildarmagninu. Meðalverð aflans var mjög gott eða 327 kr/kg sem skilaði um 450 milljónum í aflaverðmæti.
Hér er um mikla aukningu að ræða frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið var 200 milljónir og meðalverð 238 kr/kg. Milli ára jókst magnið af þorski sem selt var af handfærabátum á fiskmörkuðunum um rúm 500 tonn. Hlutdeild þeirra þá í þorski seldum á fiskmörkuðunum var tæpur þriðjungur.
Þetta kemur fram á vef Landssambands smábátaeigenda og er byggt á tölum á vef Reiknistofu fiskmarkaða.