Tveir færeyskir línu- og handfærabátar voru að veiðum í íslenskri lögsögu í októbermánuði, Polarstjornan og Kvikk. Heildarafli skipanna var 140 tonn. Mest var um keilu í aflanum, 57 tonn og langa 33 tonn. Þorskaflinn var 23 tonn.
Í frétt á vef Fiskistofu kemur fram að á fyrstu tíu mánuðum ársins veiddu færeysk skip tæp 5.040 tonn af botnfiski í íslenskri lögsögu. Á sama tíma í fyrra var aflinn heldur meiri eða tæp 5.419 tonn. Þorskafli færeysku skipanna er kominn í 1.048 tonn miðað við 1.219 tonn á sama tíma í fyrra en heimild færeyskra skipa á yfirstandandi ári eru 1.200 tonn.