Á árlegum upplýsingafundi - LUROMA - um grásleppumál sem haldinn var í London í síðustu viku kom m.a. fram að grásleppuvertíðin 2016 skilaði 19% minni afla en vertíðin þar á undan. Mestu munaði um 30% samdrátt í veiðum Grænlendinga. Þar vantaði 2.400 tunnur upp á það magn sem kom af vertíðinni 2015.
Heimsveiðin í fyrra skilaði alls um 18 þús. tunnum sem er rúmum fjögurþúsund tunnum færra en 2015. Hér á landi varð einnig samdráttur í veiðum milli ára. Alls var saltað í rúmar 10.300 tunnur sem var 15% minnkun.
Þetta kemur fram á vef LS.