Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra afhenti í dag nýtt hafrannsóknaskip, Þórunni Þórðardóttur HF 300, til Hafrannsóknastofnunar. Þorsteinn Sigurðsson forstjóri tók við skipinu fyrir hönd stofnunarinnar og blessaði sr. Laufey Brá Jónsdóttir skipið að því loknu.

Þau voru glöð í sinni, Rósa Guðbjartsdóttir, Lúðvík Geirsson hafnarstjóri og Valdimar Víðisson bæjarstjóri.
Þau voru glöð í sinni, Rósa Guðbjartsdóttir, Lúðvík Geirsson hafnarstjóri og Valdimar Víðisson bæjarstjóri.


Þórunn Þórðardóttir er 70 m langt og 13 m breitt stálskip, svokallað tvíorkuskip sem búið er rafknúnum skrúfum. Meginorkugjafi skipsins er olía en um borð eru einnig stórar rafhlöður sem gera alla orkunýtingu hagkvæmari og umhverfisvænni.

Skipið er nefnt eftir Þórunni Þórðardóttir (1925-2007), fyrstu íslensku konunni sem sótti sér sérfræðimenntun í hafrannsóknum. Þórunn var frumkvöðull í rannsóknum og vann nær allan sinn starfsaldur sem deildarstjóri hjá Hafrannsóknastofnun. Eitt helsta afrek Þórunnar voru rannsóknir og mat á heildarfrumframleiðni svifþörunga á Íslandsmiðum en svifþörungar eru undirstaða fæðukeðju hafsins. Þórunn var jafnframt á meðal fyrstu sjávarlíffræðinga til að nota geislakolsaðferð til að meta framleiðni í sjónum. Hún hlaut heiðursviðurkenningu Lýðveldissjóðs Alþingis fyrir framlag sitt til rannsókna á hafinu við Ísland.

Þórunn Þórðardóttir HF.
Þórunn Þórðardóttir HF.


Smíði skipsins fór fram í Astilleros Armon skipasmíðastöðinni í Vigo á Spáni. Þaðan var haldið úr höfn 25. febrúar sl. og lagst að bryggju í Hafnarfirði 8. mars. Frá upphafi var það markmið sett að skipið yrði eins vel útbúið og unnt væri til að sinna hafrannsóknum, bæði hvað varðar hönnun og tækni.

Þórunn Þórðardóttir HF 300 leysir af Bjarna Sæmundsson HF 30 sem hefur þjónað sem hafrannsóknaskip frá 1970 en hefur nú verið selt til aðila í Noregi. Hið nýja skip hefur þegar verið bókað í sitt fyrsta verkefni og mun halda úr höfn innan fárra daga í svokallað marsrall eða stofnmælingu botnfiska á Íslandsmiðum. Heildarkostnaður við smíði skipsins var um fimm milljarðar króna sem var innan fjárheimilda.

Áhöfn Þórunnar Þórðardóttur HF í sínu besta pússi stillti sér upp.
Áhöfn Þórunnar Þórðardóttur HF í sínu besta pússi stillti sér upp.

„Með öflugum rannsóknum getum við tryggt að ákvarðanir sem varða nýtingu auðlinda hafsins verði teknar á traustum vísindalegum grunni. Slíkar ákvarðanir eru ekki aðeins nauðsynlegar fyrir efnahagslega velferð þjóðarinnar, heldur einnig fyrir verndun líffræðilegrar fjölbreytni og sjálfbærni auðlindanna til framtíðar“ sagði atvinnuvegaráðherra í ræðu sinni. „Í þessu samhengi gegnir Hafrannsóknastofnun lykilhlutverki, þar sem þekking og ráðgjöf stofnunarinnar er grundvallarforsenda þess að við náum markmiðum okkar um sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins.“