Viðurkenningar fyrir árangur í loftslagsmálum voru afhentar á loftslagsfundi Festu og Reykjavíkurborgar í Hörpu sem haldinn var nú í morgun.
Afhentar voru þrjár viðurkenningar, Loftlagsviðurkenning, Hvatningarviðurkenning og viðurkenning fyrir upplýsingamiðlun og fræðslu um loftlagsmál.
HB Grandi hlaut Loftslagsviðurkenningu Festu og Reykjavíkurborgar í dag. Við kynningu þeirra var kolefnisbókhald HB Granda sérstaklega nefnt sem sýnir 5% lækkun á losun gróðurhúsalofttegunda milli ára. Eins þá ákvörðun að HB Grandi hefur alfarið hætt notkun svartolíu og sorpflokkunarstöðvar fyrirtækisins sem eru á öllum starfsstöðvum félagsins.
„Það er okkur heiður að taka á móti þessari viðurkenningu. Loftslagsmál og umhverfismál almennt hafa lengi vel verið okkur mikilvæg og í raun grunnurinn að okkar starfsemi“, sagði Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, við móttöku viðurkenningarinnar.
Fiskifréttir fjölluðu sérstaklega um aðgerðir HB Granda í umhverfismálum nýlega – og sérstaklega þau atriði sem fyrirtækið hlaut verðlaunin fyrir.