Haustak hf. sérhæfir sig í fiskþurrkun og er staðsett á Grindavík. Í viðtali á vef LÍÚ segir Víkingur Þ. Víkingsson framleiðslustjóri Haustaks helstu viðskipti fyrirtækisins fara fram á Nígeríumarkaði þar sem þurrkaðir þorskhausar er aðal útflutningsvaran.
Haustaki hf. hefur nú verið sýndur sérstakur áhugi, af erlendum aðilum, á aðferðum sínum sem fyrirtækið beitir til þurrkunar þar sem mögulegt er að nota sömu tækni til að þurrka önnur matvæli. Sem dæmi má nefna kjöt og ávexti.
Að sögn Víkings hefur Haustaki tekist að þurrka sínar afurðir án þess að þær missi næringargildi og bragð með því að notast við hátt rakastig. Asía, Indland og arabísku furstadæmin hafa nú þegar sýnt áhuga og hafa stjórnendur Haustaks fengið aðila á borð við sendiherra frá fyrrnefndum svæðum og fyrirtækjum sem starfa við þurrkun matvæla til sín í þeim hugleiðingum að kynna sér og mögulega innleiða þessa tækni.
Sjá nánar á www.liu.is