Togarinn Breki VE kom til Eyja í gærkvöldi með um 120 tonn af fiski sem veiddist í fyrri hluta togararalls Hafrannsóknastofnunar. Magnús Ríkarðsson skipstjóri segir að liðlega helmingur rallsins sé nú að baki og að löndun lokinni verði haldið til austurs í síðari hluta verkefnisins.

„Okkur hefur gengið vel og veðrið ekki sett strik í reikninginn. Svæðið okkar er frá Snæfellsnesi austur um að Hvalbaksmiðum og við höfum togað á 86 af alls 154 rannsóknastöðvum sem okkur er ætlað að sinna.

Við hefjum seinni hálfleik á austursvæðinu að löndun lokinni og gerum ráð fyrir að enda rallið með annarri löndun í Eyjum," segir Magnús á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar.

Árlegu togararalli er ætlað að mæla stofna botnfisks á Íslandsmiðum. Þetta var fyrst gert fyrir fjórum áratugum og Breki VE tekur þátt í verkefninu, sjálfu afmælisralli Hafró, fjórða árið í röð.

Gullver NS, togari Síldarvinnslunnar, rallar líka í fjórða sinn og með Breka og Gullveri eru rannsóknarskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson í sama tilgangi á miðunum.

Sverrir Haraldsson, sviðstjóri botnfisksviðs Vinnslustöðvarinnar, segir það vissulega hafa áhrif á starfsemina að taka Breka úr öflunarrútínu hráefnis í þær vikur sem togararallið taki en frekar jákvæð áhrif en neikvæð þegar allt komi til alls.

Hentar vel meðfram öðrum veiðum

„Það hentar okkur mjög vel að fá svona verkefni og sinna því meðfram öðrum veiðum. Við skipuleggjum starfsemina bara með það í huga að togarinn sé upptekinn í öðru tímabundið," segir Sverrir.

„Skipstjórnarmenn á Breka og við í landi líka öðlumst dýrmæta reynslu í rallinu og við höfum mikið gagn af því að kynnast hafrannsóknum á þennan hátt. Við erum sérlega ánægð með samstarfið við stjórnendur Hafró, vísindamennina og rannsóknafólkið sem tekur þátt í þessu og lærum mikið af því."

Því er við að bæta að skipstjórinn á Gullveri NS, Steinþór Hálfdanarson, er mikill reynslubolti í togararalli og hefur víst tekið þátt í slíkum verkefnum hátt í þrjátíu sinnum, oftast á togaranum Bjarti. Steinþór hætti á sjónum fyrir þremur mánuðum en á vef Síldarvinnslunnar kemur fram að hann hafi verið fenginn sérstaklega á ný í brúna á Gullveri af þessu tilefni.

„Karlar eins og ég eru stundum fengnir í svona verkefni. Ég telst líklega hafa mjög góða rallreynslu."

Rannsóknasvæði Gullvers er frá Skjálfanda og austur um að Breiðdalsgrunni. Þá togar skipið líka á Þórsbanka, að færeysku lögsögunni.