Hagnaður Samherja hf. af rekstri dóttur- og samstarfsfélaga í fimmtán löndum nam 14,3 milljörðum króna árið 2016. Rúmur helmingur starfseminnar er í útlöndum. Afkoma dótturfélaganna var einnig arðbær. Miklar fjárfestingar hafa staðið yfir og eru framundan og því var samþykkt á aðalfundi Samherja hf. að greiða ekki arð vegna rekstrarársins 2016, segir í frétt á heimasíðu fyrirtækisins.
Þar er haft eftir Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja, að loknum aðalfundi.
„Við erum stolt af afkomu Samherja hf. Samstillt vinna, eljusemi, dugnaður og traust starfsmanna okkar og samstarfsmanna um allan heim hefur enn á ný skilað afrakstri sem rík ástæða er til að gleðjast yfir.“
„Það má segja að á síðasta ári hafi nýjar fjárfestingar byrjað að skila sér. Miklar endurbætur á landvinnslu ÚA á árinu 2015 tókust vel og sex ný skip voru í smíðum á vegum félagsins á árinu 2016. Þetta eru fjárfestingar sem munu leggja grunn að bættri afkomu og sveigjanleika í rekstri á komandi árum. Tvö skipanna, Kaldbakur og Björgúlfur, eru þegar komin til landsins og Cuxhaven hefur haldið til veiða í Þýskalandi. Þá munu verulegar fjárfestingar í Íslandsbleikju treysta fiskeldið," segir Þorsteinn Már.