Sjávarútvegsfyrirtækið Icelandic Group hagnaðist um 6,1 milljón evra á síðasta ári, sem jafngildir um 957 milljónum króna eftir skatta. Hagnaður fyrir skatta nam 15,6 milljónum evra sem er 25% aukning frá fyrra ári.
Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) var 4,2% af veltu eða 41,9 milljónir evra. Það jafngildir 6,6 milljörðum króna. Velta ársins 2010 nam 999,6 milljónum evra, eða 157 milljónir króna.
Þetta kemur fram í tilkynningu um uppgjör Icelandic Group.
Sjá nánar á vef Viðskiptablaðsin s.