Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns eða EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegsins jókst milli áranna 2010 og 2011.

Þetta kemur fram í hefti sem Hafstofan hefur gefið út um hag fiskveiða og fiskvinnslu 2011.

Í fiskveiðum og -vinnslu hækkaði framangreint hlutfall (án milliviðskipta) úr 28,9% í 30,3%, í fiskveiðum lækkaði hlutfallið úr 26,6% árið 2010 í 26,4% af tekjum árið 2011 og í fiskvinnslu úr 16,1% í 19,1%. Hreinn hagnaður (EBT), skv. árgreiðsluaðferð, í sjávarútvegi árið 2011 nam 22,6% samanborið við 19,8% hagnað árið áður. Hagnaður var áfram á rekstri mjölvinnslu og á rekstri loðnuskipa á árinu 2011.

Heildareignir sjávarútvegs í árslok 2011 voru 547 milljarðar króna, heildarskuldir 543 milljarðar og eigið fé 105 milljarðar.