Hreinn hagnaður veiða og vinnslu fyrir skatta árið 2012 nam 46,6 milljörðum króna, eða um 17,5% af veltu. Heildarskuldir sjávarútvegs voru 429 milljarðar í lok árs 2012 en eignir 535 milljarðar. Eigið fé var tæpir 106 milljarðar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í Hagtíðindum um hag veiða og vinnslu sem Hagstofan hefur gefið út.

Í frétt á vef Hagstofunnar er samantekt um hag veiða og vinnslu miðað við nokkra mælikvarða, þ.e. EBITDA, hreinn hagnaður samkvæmt árgreiðsluaðferð og hreinn hagnður miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð: „Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns, EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs minnkaði milli áranna 2011 og 2012. Í fiskveiðum og -vinnslu lækkaði  hlutfallið (án milliviðskipta) úr 30,3% í 30%, lækkaði í fiskveiðum úr 26,4% árið 2011 í 25% af tekjum árið 2012 og lækkaði í fiskvinnslu úr 19,1% í 17,2%.

Hreinn hagnaður (EBT) í sjávarútvegi, samkvæmt árgreiðsluaðferð, nam 21,5% árið 2012 samanborið við 22,6% árið áður. Í fjárhæðum nam hagnaðurinn 57,2 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð 22,6 milljarðar. Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð er niðurstaðan 17,5% hagnaður 2012 eða 46,6 milljarðar, samanborið við 17,1% hagnað árið 2011, enda gætti ekki beinna áhrifa af breytingum á gengi við mat á fjármagnskostnaði sé árgreiðsluaðferðin notuð. Árgreiðsla í veiðum hækkaði hinsvegar árið 2012 frá árinu áður, meðal annars vegna aukins fjölda smábáta sem var að veiðum,“ segir á vef Hagstofunnar.