Hafrannsóknastofnun hefur lagt til að loðnukvótinn verði aukinn um 20 þúsund tonn og fari í 150 þúsund tonn á vertíðinni að þvi er fram kemur í frétt á vef stofnunarinnar.
Frá 8. febrúar hefur rs. Árni Friðriksson verið við rannsóknir og mælingar á stærð loðnustofnsins, m.a. til að fylgjast með göngum stofnsins við austan- og sunnanvert landið. Einnig hafa nokkur veiðiskip sem og rs. Bjarni Sæmundsson aðstoðað rannsóknaskipið á afmörkuðum svæðum við Suðurströndina og út af austanverðu Norðurlandi. Útreikningar á stærð veiðistofnsins sem byggja á þessum mælingum sýna að alls mældust 505 þúsund tonn af kynþroska loðnu. Áður en ofangreind mæling fór fram er áætlað að veidd hafi verið um 45 þús. tonn af loðnu og því er áætluð stærð stofnsins nú, að meðtöldum þeim afla um 550 þúsund tonn.
Eins og kunnugt er var stærð stofnsins mæld 530 þús. tonn dagana 22.-29. janúar síðastliðinn. Í kjölfar þeirrar mælingar lagði Hafrannsóknastofnunin til við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið að leyfilegur hámarksafli á vertíðinni 2009-2010 yrði ákveðinn 130 þúsund tonn. Í ljósi þess að gildandi aflaregla gerir ráð fyrir að 400 þúsund tonn séu skilin eftir til hrygningar og á grundvelli ofangreindra mælinga hefur Hafrannsóknastofnunin lagt til við ráðuneytið að leyfilegur hámarksafli á vertíðinni 2009-2010 verði ákveðinn 150 þúsund tonn. Er það 20 þúsund tonna aukning frá fyrri tillögu.