Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu báðir fullfermi í Eyjum í gær. Að því er segir á vef Síldarvinnslunnar hafa skipin landa á tveggja til þriggja daga fresti að undanförnu.

Haft er eftir Birgi Þór Sverrissyni, skipstjóra á Vestmannaey, að aflinn hafi verið ýsa, þorskur og koli.

„Við byrjuðum á Ingólfshöfða og vorum þar í ýsu og kola en síðan var þorskurinn tekinn á Broadway vestan við Eyjar. Það var ágætis veður í túrnum og reyndar hefur ekki verið hægt að kvarta mikið undan veðri að undanförnu. Hann hefur legið í norðanáttum og veðrið hefur ekki haft mikil áhrif á veiðarnar. Það er búin að vera fínasta vertíð til þessa og menn sáttir við árangurinn,“ segir Birgir. Vertíðin hafi hins vegar verið svolítið eða skrítin.

Fiskurinn hagar sér öðruvísi

„Fiskurinn hefur verið seint á ferðinni og hann hefur hagað sér öðruvísi en yfirleitt áður. Hann hefur haldið sig grunnt og ekki gengið út á hinar hefðbundnu hrygningarslóðir. Veiðin hefur gjarnan komið í gusum, það fiskast vel en síðan verður allt steindautt og þá þarf að færa sig. Við höfum séð töluvert af loðnu og henni fylgir hvalur. Loðnan kom seint og við urðum fyrst varir við hana á Vík og Pétursey um 10. mars,“ er haft eftir Birgi. Nú hafi menn líka séð loðnu fyrir vestan Eyjar.

„Auðvitað gerum við okkur ekki grein fyrir því hve loðnan gengur í miklu magni en hún sýnir sig hér. Við munum halda til veiða á ný aðfaranótt laugardags og gert er ráð fyrir að landað verði á annan í páskum. Það verður að tryggja vinnslunum hráefni eftir hátíðina,” segir Birgir Þór á svn.is.