Ísfisktogarinn Gullver NS landar fullfermi eða 115 tonnum í heimahöfn á Seyðisfirði í dag. Uppistaða aflans er þorskur en síðan er mest af karfa og ýsu. Heimasíða Síldarvinnslunnar í Neskaupstað ræddi við Steinþór Hálfdanarson skipstjóra og spurði fyrst um aflabrögðin.

„Það hefur sannast sagna verið hörkufiskirí hérna fyrir austan síðustu vikur. Það hefur víða verið mjög góð veiði. Í þessum túr fengum við karfann í Berufjarðarálnum en síðan veiddum við á Fætinum, á Skrúðsgrunni, í Reyðarfjarðardýpinu og enduðum á Tangaflaki. Fyrir utan góða veiði var gott veður og í sannleika sagt gekk allt eins og í sögu. Við lönduðum síðast 20. október og þá var skipið nánast fullt. Þá vorum við eingöngu á Glettinganesflakinu og Tangaflakinu í fínasta fiskiríi. Hér um borð eru allir hinir bröttustu, hvernig á annað að vera,“ segir Steinþór.