Meirihluti stjórnar HB Granda hf. ákvað á fundi í dag að ganga til samninga við Vilhjálm Vilhjálmsson, forstjóra, um starfslok hans hjá félaginu.
Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Á sama fundi ákvað stjórn að ráða Guðmund Kristjánsson, núverandi stjórnarformann félagsins, sem forstjóra. Í kjölfarið skipti stjórn með sér verkum á ný og var Magnús Gústafsson kjörinn nýr stjórnarformaður. Hann mun láta af störfum sem forstjóri Brims en hann hefur rekið útgerðarfélög í samfleytt yfir 30 ár. Rannveig Rist verður áfram varaformaður stjórnar HB Granda.
Guðmundur keypti nýlega stóran eignarhlut Kristjáns Loftssonar og Halldórs Teitssonar í HB Granda. Heildarupphæð viðskiptanna nam tæplega 22 milljörðum króna.