Fiskistofa í samstarfi við Landhelgisgæsluna hefur haft eftirlit með fjölda grásleppuneta í sjó hjá bátum sem stunda þessar veiðar. Á dögunum fóru eftirlitsmenn Fiskistofu um borð í grásleppubáta úti fyrir Norðurlandi eftir að skoðun á gögnum og veiðarfærum á veiðislóð gaf vísbendingar um að netafjöldi væri umfram það sem leyfilegt er. Eftirlitsmennirnir voru viðstaddir er öll net viðkomandi báta voru dregin. Í framhaldi að því var stjórnendum þeirra gert að færa öll net sem voru umfram leyfilegan fjölda í land.
Talning eftirlitsmanna Fiskistofu leiddi í ljós að fjöldi neta í sjó var langt umfram það sem heimilt er. Jafnframt voru gerðar nokkrar athugasemdir við merkingar veiðarfæra. Nokkur mál hafa verið kærð til lögreglu ásamt því að vera til meðferðar hjá Fiskistofu.
Fiskistofa og Landhelgisgæslan munu halda þessu samstarfi áfram með það að markmiði að reglum um hrognkelsaveiðar sé framfylgt, segir ennfremur í fréttatilkynningu frá Fiskistofu.