Frystitogarinn Blængur NK kom til löndunar til Neskaupstaðar á laugardag að lokinni 26 daga veiðiferð. Togarinn millilandaði í Hafnarfirði hinn 13. þessa mánaðar, eins og segir frá á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Bjarni Ólafur Hjálmarsson, skipstjóri, segir í frétt fyrirtækisins að veiðiferðin hafi gengið ágætlega.

„Við hófum veiðar fyrir vestan og millilönduðum í Hafnarfirði eftir um það bil 10 daga. Það var mest karfi sem þá fór á land. Síðan héldum við áfram veiðum á Vestfjarðamiðum og einnig úti fyrir Norðurlandi og þar veiddist vel af ufsa og karfa auk þess sem nokkur þorskur var í aflanum. Heildaraflinn upp úr sjó var 566 tonn og verðmætin voru um 123 milljónir. Segja má að vel hafi veiðst allan túrinn og veðrið var með ágætum,“ sagði Bjarni Ólafur.