Bjarni Ólafsson AK liggur í Norðfjarðarhöfn og verið er að gera skipið klárt fyrir loðnuvertíð.

Runólfur Runólfsson skipstjóri segir í viðtali í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar að vinnan gangi vel og menn séu spenntir að halda til veiða.

„Ég geri ráð fyrir að við siglum suður til Reykjavíkur á morgun en loðnunótin er þar. Nótin verður væntanlega tekin um borð á mánudagsmorguninn og síðan verður haldið rakleiðis til veiða úti fyrir Norðurlandinu. Það skiptir máli að hefja veiðar sem fyrst ef allur sá kvóti sem úthlutað hefur verið á að nást. Menn verða að halda mjög vel á spilunum til að ná kvótanum og nauðsynlegt verður að veiða drjúgan hluta hans fyrir áramót. Stóra spurningin í þessu öllu saman er veðrið. Það viðrar oft ekkert sérstaklega vel þarna fyrir norðan á þessum árstíma og veðurútlitið fyrir næstu viku er ekki gott. Menn verða hins vegar að vera á staðnum og grípa tækifærin í veðurgluggum þegar þau gefast. Það veiðist ekkert ef menn eru ekki til staðar. Þetta mun allt koma í ljós og það þýðir ekkert annað en vera bjartsýnn,“ segir Runólfur.