Íslenska landeldissfyrirtækið Geo Salmo hefur undirritað samning við norska fyrirtækið Artec Aqua um hönnun og uppbyggingu laxeldisstöðvar sinnar á landi í Ölfusi, vestan Þorlákshafnar. Geo Salmo stefnir að því að reisa liðlega 20.000 tonna landeldisstöð og samningurinn kveður á um uppbyggingu fyrsta áfanga hennar, sem ætlað er að framleiði 7.300 tonn af heilum laxi. Heildarverðmæti samningsins er á bilinu 21-25 milljarðar króna og nær hann yfir hönnun, búnað og sjálfa uppbyggingu stöðvarinnar, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Geo Salmo.

Fiskeldi Geo Salmo í Ölfusi mun byggja á einstökum náttúrugæðum þar sem hægt er að ná í gnægð af hreinum sjó úr jörðu, sem hentar afar vel til laxeldis. Fiskeldisstöðin verður búin fullkomnasta búnaði sem völ er á til stýringar hitastigs og vatnsgæða sem tryggir vöxt og velferð fisksins í aðstæðum sem endurspegla að mörgu leyti náttúrulegt umhverfi hans. Öll ker verða yfirbyggð sem tryggir fullkomna stjórn á eldisferlinu og þar með áður óþekktan stöðugleika og gæði.

Artec Aqua var stofnað fyrir um 20 árum síðan og hefur síðan þá boðið upp á heildarþjónustu við uppbyggingu fjölda fiskeldisstöðva, fyrst og fremst í Noregi. Áhersla félagsins hefur ætíð verið á velferð fisks og gæðaafurða og rímar það vel við markmið Geo Salmo um að ala umhverfisvænan hágæðalax við bestu mögulegu aðstæður. Artec Aqua hefur nýlega lokið hönnun og uppbyggingu landeldisstöðvar af svipaðri stærð og gerð og þeirri sem samningurinn kveður á um að reist verði og var sú stöð sú fyrsta þeirrar tegundar á heimsvísu.

Reynsla og yfirburðatækni

„Okkur er einstök ánægja að hefja samstarf við Artec Aqua um uppbyggingu Geo Salmo. Þau hafa tryggt stöðu sína sem leiðtogi á heimsvísu í landeldi á fiski og hafa sýnt einstaka getu til þess að mæta og fara fram úr væntingum við uppbyggingu verkefna sinna. Samspil þekkingar, reynslu og yfirburðatækni Artec Aqua réðu úrslitum um val okkar á heildarbirgja fyrir verkefnið. Samstarfið mun tryggja árangur í vegferð okkar að eldi á laxi í hæsta gæðaflokki sem einnig verður meðal umhverfisvænustu matvæla,“ segir Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri Geo Salmo.

Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri Geo Salmo.
Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri Geo Salmo.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Undirbúningshönnun Artec Aqua er þegar hafin, en framkvæmdir hefjast skv. áætlun haustið 2023. Tæknin í stöðinni er blandað gegnumstreymiskerfi sem tryggir hámarksvatnsgæði með lágmarksinngripum.

„Við unnum forhönnunarverkefni með Geo Salmo í vor á þessu ári og erum afar ánægð með að halda áfram góðu samstarfi með þessu gríðaröfluga teymi. Verkefnið er afar spennandi þar sem það sameinar blandaða gegnumstreymistækni okkar og einstakar aðstæður á Íslandi þar sem afla má saltvatns sem hefur síast náttúrulega gegnum hraungrýti. Val á okkur sem samstarfsaðila í þessu viðamikla verkefni er staðfesting á sterku orðspori Artec Aqua við uppbyggingu landeldisstöðva og einstakri hæfni okkar teymis,” segir Ingegjerd Eidsvik, framkvæmdastjóri Artec Aqua.

Stefnt er að því að fá að verkefninu fjölmarga íslenska verktaka og þjónustuaðila og þannig byggist upp ný þekking og reynsla á Íslandi sem getur nýst þeirri ört vaxandi atvinnugrein sem landeldi á laxi stefnir á að verða á næstu árum hér á landi.