Beitir NK er byrjaður að fá loðnu austan við Kolbeinseyjarhrygg. Komin eru 850 tonn í þremur holum. Síldarvinnslan segir frá þessu á vef sínum.
Skipverjar voru að fara að dæla í morgun þegar rætt var við Sturlu Þórðarson skipstjóra.
„Það er ekki mikið í núna en við erum þegar komnir með 850 tonn í þremur holum. Það voru rúmlega 300 tonn í fyrstu tveimur og síðan 200. Ætli séu ekki 150 – 200 tonn í þessu holi. Við erum austan við Kolbeinseyjarhrygginn og sáum töluvert af loðnu á laugardaginn en heldur minna í gær. Þetta virðist vera fínasta loðna, um 40 stykki í kílóinu og karl og kerling til helminga,“ er haft eftir Sturlu á vef Síldarvinnslunnar.