Það var grænlenska skipið Polar Amaroq sem landaði tæplega 700 tonnum af frystri loðnu á Eskifirði á laugardaginn.

„Starfsmenn Tandrabergs ehf. hófu löndunina snemma um morguninn og lauk henni um kvöldið,“ segir í frásögn Síldarvinnslunnar. „Þessi loðnulöndun markar tímamót því hún er sú fyrsta hér á landi í tæplega þrjú ár.“

Haft er eftir Sigurði Grétari Guðmundssyni skipstjóra að það sé afar góð tilfinning að vera farinn að veiða loðnu á ný. Skipið hélt síðan til veiða á ný strax að löndun lokinni.

„Polar Amaroq fékk aflann í hinu svonefnda trollhólfi austur af landinu. Aflinn fékkst að mestu í þremur holum en fyrsta holið var tekið í mjög slæmu veðri og gaf einungis 20-30 tonn. Loðnan sem veiddist var hin fallegasta og voru um það bil 40 stk. í kílóinu. Nokkur áta var í loðnunni,“ segir á vef fyrirtækisins.

„Þegar haft var samband við skipið í morgun var það búið að taka eitt 300 tonna hol og var unnið að frystingu um borð af fullum krafti.“