Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir í Vestmannaeyjum í gær. Bergur var með fullfermi og Vestmannaey með tæplega 50 tonn.

Heimasíða Síldarvinnslunnar heyrði í skipstjórunum og spurði þá tíðinda. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, segir að þeir hefðu lent í fínasta fiskiríi.

„Við fórum á Selvogsbankann, nánar tiltekið á Sannleiksstaði, og þar var væn þorskveiði á þriðjudag og í gærmorgun, en það var hins vegar rólegt í upphafi túrs. Mér finnst ekki kominn vertíðarbragur á þetta ennþá en fiskurinn sem fékkst er flottur; vertíðarþorskur, lifrarmikill og með hrognum. Það er heilmikill fiskur uppi í landsteinum og þar eru dragnótabátar og línubátar að gera það gott en fiskurinn er ekki genginn út frá landinu í mjög miklum mæli ennþá. Það var sæmilegasta veður í þessum túr, norðangjólukaldi allan tímann,“ segir Jón.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, segir að þeir hafi verið á vitlausu róli í túrnum.

„Við byrjuðum á Selvogsbankanum en þar var lítið að fá. Við færðum okkur þá yfir á Pétursey en þá brast á hörkufiskirí á Selvogabanka. Það var lítið fiskirí á Péturseynni þannig að við fórum til baka og fengum fínan afla á Selvogsbankanum í þá 17 klukkutíma sem við stoppuðum þar. Þar fékkst helst yfir sjö kílóa þorskur, hinn fallegasti fiskur,“ segir Egill Guðni.

Bergur mun halda til veiða á ný í dag og Vestmannaey í kvöld.