Fimm útköll hafa verið hjá sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá því á miðnætti.
Rétt upp úr klukkan eitt í nótt barst Neyðarlínu tilkynning frá fólki sem hafði verið á siglingu í miðjum Seyðisfirði á litlum skemmtibát. Bátnum hafði á einhvern hátt hvolft og fólkið sem var um borð, fimm manns, komist á kjöl bátsins.
Við þessu útkalli brugðust strax björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði sem sjósetti björgunarbát, Björgunarskipið Hafbjörg á Neskaupstað, auk smærri björgunarbáts björgunarsveitarinnar Gerpis á Neskaupstað. Auk þess var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar kölluð út.
Um tuttugu mínútum eftir útkall var búið að bjarga öllum skipverjum um borð í björgunarbát Ísólfs, Árna Vilhjálmsson, og var þá öðrum snúið við, skipum, bátum og þyrlu.
Fólkið var flutt í land og varð því ekki meint af þessu óhappi. Í kjölfarið fór áhöfn Árna Vilhjálms aftur á slysstað og náði að koma bátnum á réttan kjöl og draga til hafnar.
Aðgerðum í Seyðisfirði var lokið upp úr þrjú í nótt.
Bilaðar vélar í fjórum strandveiðibátum
Í morgunsárið bárust svo með skömmu millibili fjögur útköll vegna strandveiðibáta í vandræðum.
Fyrsta útkallið var vegna báts í Faxaflóa, skammt undan Syðra Hrauni, sem hafði orðið fyrir vélarbilun. Skipverji þurfti að drepa á vél bátsins ella hefði sjór flætt inn.
Björgunarbáturinn Margrét Guðbrands frá Björgunarfélagi Akraness er með bátinn í togi þegar þessi orð eru skrifuð, á leið til Akraness.

Aðeins rúmlega tíu mínútum síðar barst útkall vegna báts í Ísafjarðardjúpi sem var án vélarafls. Björgunarsveitin Kofri fór í það verkefni á nýjum björgunarbát sveitarinnar, Svan, og eru skipin nú í mynni Ísafjarðardjúps á leið til lands.
Klukkutíma síðar, eða rétt upp úr klukkan átta, barst svo beiðni frá litlum fiskibát í mynni Patreksfjarðar, enn á ný vegna vélarbilunar. Björgunarskipið Vörður II hélt þegar út til aðstoðar og er nú á leið til hafnar á Patreksfirði í þéttri þoku en með bátinn í togi.
Og rétt um níu í morgun barst svo fimmta útkallið, þegar áhöfn Hannesar Þ Hafstein, björgunarskipsins í Sandgerði var kölluð út vegna lítils fiskibáts sem staddur var vestur af Syðra Hrauni með bilaða vél.
Í þeim tilvikum utan atviksins í Seyðisfirði, var ekki bein hætta á ferðum, en vissulega er það óvenjulegt að á sama tímu séu fjögur skip félagsins á sjó, með báta í togi á leið til hafnar.