Stjórnarfundur í Farmanna-og fiskimannasambandi Íslands (FFSÍ) mótmælir harðlega framkomnum frumvörpum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem geti ekki leitt til annars en verri afkomu þeirra sem hafi fiskveiðar að aðalstarfi.,,Það virðist vera markmið sitjandi stjórnvalda að rýra kjör atvinnusjómanna og færa það sem af þeim er tekið til tómstundafiskimanna. Efni frumvarpanna er óravegu frá því samkomulagi sem varð niðurstaða svokallaðrar sáttanefndar s.l. sumar,” segir í ályktun stjórnar FFSÍ.