Fjöldi skráðra fiskiskipa var 1.535 í lok ársins 2023, þar af voru 39 togarar, 678 vélskip og 818 opnir smábátar. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

„Fiskiskipum hefur fækkað frá aldamótum í öllum stærðarflokkum að undanskildum skipum yfir 1.500 brúttótonn, sem hefur fjölgað. Skráðir togarar voru 84 árið 2000 og eru núna 39 og vélskipum hefur fækkað um 130 á sama tímabili,“ segir á hagstofa.is.