Ísfisktogarinn Akurey AK hefur verið að nota tvö troll samtímis á Halamiðum. Að sögn skipstjórans, Jóns Frímanns Eiríkssonar, var það þó ekki hægt í þessari veiðiferð fyrr en í gær, en veðurfar ræður því hvort það sé hægt að toga með einu eða tveimur trollum samtímis.

Frá þessu er sagt á vef Brims hf. sem gerir út Akurey. Haft er eftir Jóni Frímann að tveggja trolla veiðarnar skili umtalsvert betri árangri en þegar dregið er eitt troll.

„Við hófum veiðar á Látragrunni. Við fórum það hægt vegna veðurs að mér fannst eins gott að setja trollið út. Við drógum svo norður vesturkantinn en á Halann vorum við svo komnir á laugardag. Það var ekkert veiðiveður til að byrja með, eiginlega stormur, en svo hefur dregið úr veðurhamnum. Í dag er búið að vera blíðviðri. Við höfum getað veitt með tveimur trollum samtímis í allan dag og aflabrögð eru góð,“ sagði Jón Frímann í gær og áætlaði hann að heildaraflinn hafi verið um 80 tonn. Þorskur er uppistaða aflans en aukaafli eru tegundir eins og ufsi, ýsa og gullkarfi.

Jón Frímann var einnig með skipið í túrnum á undan en þá var heildaraflinn í veiðiferðinni um 140 tonn. Landað var í Reykjavík.

,,Þá gekk allt eins og sögu og við gátum dregið tvo troll samtímis nema rétt undir lokin en þá var að bresta á enn ein óveðurslægðin. Við vorum allan tímann á Vestfjarðamiðum. Það gekk vel að ná þorskskammtinum og við vorum að fá tvö og upp í hálft þriðja tonn á tímann á meðan algengur afli þeirra sem voru með eitt troll var um tonn á togtímann.”

Að sögn skipstjórans hefur ekki verið mikið um ufsa hjá skipunum á Vestfjarðamiðum.

,,Það er sagt að ufsinn sé brellinn og það er hægt að taka undir það. Það skýrir líka lítinn ufsaafla að menn þora hreinlega ekki að leita að honum af ótta við að fá gullkarfa í staðinn. Margir eru í þeirri stöðu að ef þeir fá of mikinn gullkarfa þá er allt fiskveiðiárið í hættu. Það er ekki nema fjórðungur af fiskveiðiárinu liðinn og það væri sorglegt ef það þyrfti að binda skip við bryggju þegar nóg er eftir af öðrum kvótum,” segir Jón Frímann Eiríksson.

Akurey er væntanleg til hafnar í Grundarfirði í kvöld. Landað er í Grundarfirði í stað Reykjavíkur en þá sparast bæði olía og siglingatími þegar veitt er á Vestjarðamiðum.