Fiskafli íslenskra skipa í apríl var rúmlega 109 þúsund tonn sem er 5% meira en heildaraflinn í apríl 2016, að því er fram kemur í frétt á vef Hagstofunnar.
Í tonnum talið munar mestu um aukinn kolmunnaafla en af honum veiddust 67 þúsund tonn samanborið við 56 þúsund tonn í fyrra. Botnfiskafli dróst hins vegar saman á milli ára en tæp 40 þúsund tonn veiddust af botnfisktegundum samanborið við rúm 43 þúsund tonn í apríl 2016. Rúm 18 þúsund tonn veiddust af þorski sem er 10% minna í apríl 2016.
Á 12 mánaða tímabili frá maí 2016 til apríl 2017 hefur heildarafli dregist saman um 59 þúsund tonn eða 5% samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.
Afli í apríl metinn á föstu verðlagi var 10,7% minni en í apríl 2016.