Haldin voru 15 stangaveiðimót í ár samkvæmt upplýsingum Fiskistofu og eru þá bæði talin innanfélagsmót og mót milli sjóstangaveiðfélaga. Afli sem veiddist á mótunum var rúmlega 132 tonn.

Samkvæmt lögum er ráðherra heimilt að ákveða árlega að á tilteknum fjölda opinberra sjóstangaveiðimóta teljist afli ekki til aflamarks eða krókaaflamarks. Afla þessara móta er ekki heimilt að fénýta til annars en að standa straum af kostnaði við mótshaldið. Fiskistofa fær upplýsingar um þau mót sem heimilt er að halda undir þessum formerkjum og safnar og skráir upplýsingar um afla þeirra.