Hrefnuveiðibáturinn Jóhanna ÁR hélt til veiða í Faxaflóa í gærmorgun og veiddi tvær hrefnur fljótlega eftir að hún kom út á miðin. Er þá búið að veiða samtals 15 hrefnur það sem af er sumri, að því er fram kemur á vef Félags hrefnuveiðimanna.
Eins og fram hefur komið í fréttum hefur hrefnuveiðikvótinn verið aukinn úr 100 dýrum í 200 dýr á þessu ári í kjölfar nýrrar veiðiráðgjafar Hafrannsóknastofnunar, en samkvæmt lögum er kvótinn miðaður við ráðgjöfina hverju sinni.