Ferskfiskhandbókin sem nú birtist á vefnum, fjallar um innganginn að allri almennri fiskvinnslu. Það skiptir í raun ekki máli hver lokaafurðin verður, þess er ætíð krafist að hráefnið sé af bestu gerð.
Gerð þessarar handbókar var fjármögnuð af Matís með góðum stuðningi frá Rannsóknasjóði síldarútvegsins. Í frétt frá Matís segir að það sé gamaldags og úrelt viðhorf að lélegt hráefni sé hæft til framleiðslu sumra afurða. Allir neytendur eigi kröfu á að þeim sé sýnd tilhlýðileg virðing með því að bjóða þeim aðeins upp á það besta.
Gríðarleg þekking hefur orðið til í kjölfar margra rannsókna- og þróunarverkefna undanfarin ár, tæki og búnaður í veiðiskipum hefur tekið stórstígum framförum og það sama á við í flestum vinnslum landsins. Svo allt er til staðar til að framleiða eingöngu gæðaafurðir.
Það er ljóst að þekking er undirstaða þess að framleiða sem mest verðmæti úr sjávarauðlindinni og það er fátt mikilvægara en að gera hlutina rétt frá byrjun, ferskfiskhandbókin er liður í þeirri viðleitni að auka aðgengið að handhægum upplýsingum.
Hægt er að nálgast Ferskfiskhandbókina HÉR.