Í Samráðsgátt stjórnvalda hafa undanfarnar vikur verið til umsagnar drög frá Matvælaráðuneytinu um stefnumótun lagareldis til ársins 2040. Smábátafélagið Klettur hefur sent inn umsögn um málið þar sem félagið leggst alfarið gegn sjókvíaeldi á fiski í Eyjafirði.

„Í gegnum tíðina hafa ýmsir aðilar gert alls konar tilraunir til eldis í Eyjafirði í skjóli veikra laga og reglna um þennan málaflokk. Eftir hefur setið gríðarlegt magn af rusli og drasli bæði í sjó og fjörum sem engin virtist vera gerður ábyrgur fyrir.

Þess fyrir utan hafa nýleg dæmi sannað að sjókvíaeldi á ekki rétt á sér. Þar er mikil hætta á umhverfismengun svo sem varðandi úrgang frá slíku eldi, slysasleppingum, laxalús og fleiri sjúkdómum sem fylgja fiskeldi í sjó.“

Í umsögninni segir ennfremur að í Eyjafirði séu fengsæl fiskimið smábáta sem séu í hættu ef áframeldiskvíar í sjó verða leyfðar. Þá séu margar vinsælar veiðiár á svæðinu sem séu í hættu ef til slysasleppinga kemur líkt og oft hafi gerst.

Smábátafélagið Klettur hefur varnarþing frá Siglufirði í vestri, að Tjörnesi í austri.