Í ljós hefur komið að togarinn Ljósafell SU frá Fáskrúðsfirði, sem Barði NK dró til hafnar fyrir helgina, fékk trjádrumpa í skrúfuna. Sem betur fer lítur út fyrir að ekkert hafi skemmst í þeim látum, segir á vef Loðnuvinnslunna r, útgerðar skipsins.
Þar eru skipverjum á Barða sendar bestu þakkir og óskir um góða veiði. Ljósafell fer næst á sjó klukkan átta í fyrramálið.