„Við vorum að veiðum norðaustast í færeysku lögsögunni um 350 mílur frá Norðfirði. Aflinn, sem er um 1.500 tonn, fékkst í fjórum holum á 26 klukkustundum. Við vorum heppnir og hittum afar vel á þetta,“ segir Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri á Berki, í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar, eftir að hafa náð góðum sildarafla á stuttum tíma.

Það hófst strax vinnsla á aflanum í fiskiðjuverinu og gert er ráð fyrir að henni ljúki í kvöld. Þegar lokið verður við að vinna síldina hefst vinnsla á grálúðu og síðan fær starfsfólkið í fiskiðjuverinu helgarfrí, segir í fréttinni.

Síldveiðiskipin þrjú sem landa afla í fiskiðjuver Síldarvinnslunnar í Neskaupstað eru öll í höfn þessa stundina en Bjarni Ólafsson AK mun halda til síldveiða í dag og er þess vænst að hann verði kominn til löndunar á mánudag. Beitir NK mun síðan halda til veiða annað kvöld.