Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE hafa fiskað vel það sem af er sumri að sögn Arnars Richardssonar rekstrarstjóra Bergs-Hugins, dótturfélags Síldarvinnslunnar.
Frá þessu segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar en sérstaklega mun ýsuveiði hafa verið góð hjá skipunum.
Arnar segir í fréttinni að stundum hafi veiðiferðirnar verið afar stuttar.
„Nefna má að bæði skipin fóru út sl. fimmtudagskvöld og voru komin til löndunar fyrir hádegi á laugardag með fullfermi. Fullfermi hjá þessum skipum er tæp 70 tonn og þarna komu þau með blandaðan afla. Að lokinni löndun fóru þau síðan út á sunnudag og komu að landi í dag með fullfermi og nú er aflinn fyrst og fremst ufsi, karfi og ýsa. Almennt má segja að fiskiríið hafi verið gott í sumar og engin ástæða til að kvarta undan því,“ segir Arnar.
Það eina sem skyggir á góð aflabrögð að mati Arnars er verðþróun á mörkuðum. Hann segir að verð á ýsu hafi verið lágt ekki síst vegna mikils framboðs og svo sé ekki óalgengt að fiskverð lækki heldur yfir sumartímann. „Nú er hitabylgja í Evrópu og þá borða menn ekki mikinn fisk. Í slíku veðri grillar fólk og fiskneysla dettur niður,“ segir Arnar.