Síldarminjasafnið á Siglufirði greinir frá því að á nýliðnu ári heimsóttu 26.000 gestir safnið heim. Segir að um sé að ræða svolitla fækkun frá fyrra ári, eða um 5%, sem skýrist af afar miklum fjölda gesta á fjölbreyttum viðburðum í húsakynnum safnsins á samnorrænni strandmenningarhátíð árið 2018.
Enn eru erlendir ferðamenn fleiri en innlendir gestir, eða um 60%. Þá heimsóttu um 700 nemendur á öllum skólastigum Síldarminjasafnið í skipulögðum námsheimsóknum og íbúar Fjallabyggðar eru jafnframt tíðir gestir á safninu og voru um 650 á árinu.
„Augljóst er að ferðamannatímabilið er að lengjast og gestum fjölgar ár frá ári, sér í lagi yfir vetrarmánuðina því í fyrsta sinn taldi enginn mánuður ársins færri en eitt hundrað gesti,“ segir í fréttinni en skipulagðar leiðsagnir um safnið voru 355 á árinu og hafa aldrei verið fleiri.