Á árinu 2008 var enginn löggiltur vigtarmaður sviptur löggildingu.
Einn vigtarmaður fékk áminningu á árinu vegna brota á lögum um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn en áminningin var veitt vegna þess að sannað þótti að allur afli hafi ekki verið vigtaður í ákveðnum tilvikum.
Þetta kemur fram á vef Neytendastofu.