Hafrannsóknastofnun ráðleggur veiðar á 322 tonnum af rækju í Ísafjarðardjúpi fiskveiðiárið 2017/2018. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni.

Stofnunin kannaði í samvinnu við heimamenn ástand rækju í Ísafjarðardjúpi í febrúar sl. Veiðistofnsvísitala rækju mældist hærri en í nóvember og var yfir varúðarmörkum.

Nánari upplýsingar um niðurstöður stofnmælingarinnar og forsendur ráðgjafar má nálgast á vef Hafrannsóknastofnunar .