Matvælastofnun hefur endurnýjað rekstrarleyfi Klausturbleikju ehf. á Kirkjubæjarklaustri.

„Klausturbleikja ehf. sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi vegna 100 tonna hámarkslífmassa til áframeldis á bleikju. Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi var móttekin 8. nóvember 2023. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Klausturbleikju,“ segir á mast.is. Þar er jafnframt bent á að starfsemin sé einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

„Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar,“ segir einnig á mast.is.