Þyrla frá bandarísku strandgæslunni bjargaði fjórum mönnum af sökkvandi fiskibáti, Kupreanof, á Bristol flóa, um 110 mílum norðvestur af Sitka í Alaska snemma í júní. Báturinn var byrjaður að sökkva þegar þyrlan kom á vettvang og stukku skipverjar frá borði um það bil sem báturinn var að hverfa í djúpið.
Sjá MYNDBAND sem birt er á vefsíðu Fishing News International.