Hafsteinn SK-3 landaði í gær í Hafnarfjarðarhöfn elleftu hrefnunni í sumar. Veiðar hafa gengið mun betur en undanfarin ár og mikið af hrefnu í Faxaflóa þessa dagana.
Um var að ræða frekar lítið dýr eða um 6,5 metrar að lengd. Kjötið fer beint í vinnslu og nær því dreifingu inní verslanir og veitingastaði fyrir helgina, að því er segir á vef Hrefnuveiðimanna ehf.