Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi forseti Alþingis og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra til fjögurra ára, verður að líkindum næsti stjórnarformaður Landssambands fiskeldisstöðva, að því er fram kemur í frétt á vef RÚV.
Stjórn sambandsins ákvað á fundi sínum í gær að leggja til við aukaaðalfund í næstu viku að Einar yrði kosinn í stjórn samtakanna og tæki við formennsku.
Einar var kosinn á þing árið 1991 og var ráðherra sjávarútvegsmála frá 2005 til 2009. Hann var kosinn forseti Alþingis við upphaf síðasta kjörtímabils og gegndi því embætti fram á kjördag, 29. október síðastliðinn.
Í fréttatilkynningu frá Landssambandi fiskeldisstöðva er haft eftir Einari að honum þætti spennandi að fá tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun fiskeldisins, greinar sem hafi valdið straumhvörfum á einstökum landssvæðum.
Fréttatilkynning frá SF fer hér á eftir:
Stjórn Landssambands fiskeldisstöðva samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær að leggja til við aukaaðalfund LF að Einar Kristinn Guðfinnsson verði kjörinn í stjórn sambandsins og taki þar við formennsku í stjórn þess. Aukaaðalfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 24. þessa mánaðar.
Einar Kristinn lét af þingmennsku við nýliðnar alþingiskosningar eftir óslitna setu á Alþingi í ríflega aldarfjórðung, eða frá árinu 1991. Hann var sjávarútvegsráðherra á árunum 2005-2007 og ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála frá 2007-2009. Þá var hann forseti Alþingis frá árinu 2013 þar til hann lét af þingmennsku. Hann hefur lengi bundið vonir við að fiskeldi geti svarað ákalli byggðarlaga sem hafa átt undir högg að sækja í atvinnumálum og hefur í málflutningi sínum sem þingmaður sýnt fiskeldi áhuga og skilning og stutt dyggilega við uppbyggingu þess. Stjórn Landssambands fiskeldisstöðva mat það svo að fengur yrði af því fyrir atvinnugreinina féllist Einar á að ganga til liðs við landssambandið, nú að lokinni þingmennsku. Ákvað stjórn LF því að leita til hans um þátttöku í stjórn sambandsins sem stjórnarformaður. Á það hefur Einar fallist.
Í máli Einars Kristins á stjórnarfundi LF sem haldinn var í gær kom fram að honum þætti spennandi að fá tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun þessarar mikilvægu atvinnugreinar, sem þegar hefur valdið straumhvörfum á einstökum landssvæðum, eins og kunnugt er og getur orðið burðarás í atvinnulífi fleiri byggðarlaga sem staðið hafa höllum fæti. „Ég hef ávallt litið á mig sem erindreka fjölþættra atvinnutækifæra í landsbyggðunum og sem stjórnarformaður LF fæ ég kærkomið tækifæri til þess að halda þeirri vegferð áfram. Ég er sannfærður um að hægt sé að vinna að uppbyggingu fiskeldis í sátt við umhverfi og lífríki náttúrunnar og hef skynjað mikinn metnað hjá fiskeldisfólki á því sviði. Fiskeldi á Íslandi er á ákveðnum tímamótum. Þegar hafa verið lagðir miklir fjármunir í uppbyggingu þess með góðum árangri. Framundan er frekari uppbygging til hagsbóta fyrir þjóðarbúið allt. Það er áhugavert að þessi uppbygging fer að lang mestu leyti fram á landsbyggðinni og þá ekki hvað síst í byggðarlögum sem hafa háð erfiða varnarbaráttu undanfarin ár.“
Að mati Einars Kristins er einnig nauðsynlegt að huga að fleiri þáttum svo sem samgöngumálum og menntunarmálum í samhengi við þessa ört vaxandi atvinnugrein sem þarf á sífellt fleira starfsfólki að halda með fjölbreytta menntun af ýmsu tagi. Segir Einar mikilvægt að skapa vel menntuðu fólki aukin atvinnutækifæri og búsetuskilyrði á landsbyggðinni með sama hætti og t.d. hefur tekist á Austurlandi á undanförnum tíu árum þar sem ný kjölfesta varð til í Reyðarfirði.
„Það er svo ekki síður brýnt að eiga náið og gott samstarf við stjórnvöld og eftirlitsstofnanir um þróun greinarinnar og stuðla að góðri samvinnu við landeigendur og veiðiréttarhafa um vernd og viðgang villtra laxastofna. Vonandi verður unnt að skapa vettvang þar sem allir hagsmunaaðilar sjá sér hag í að snúa bökum saman og standa þannig sem best að uppbyggingu fiskeldisins. Að því vilja fiskeldismenn vinna og þess vegna er það í senn sómi og tilhlökkunarefni fyrir mig að slást í þann hóp,“ segir Einar Kristinn Guðfinnsson.