Eimskip og Norðurál hafa skrifað undir samstarfssamning um flutning á afurðum Norðuráls til og frá verksmiðju þeirra á Grundartanga. Samningurinn tekur gildi um mitt ár 2023 og er til fimm ára.

Félögin hafa um árabil átt gott samstarf þar sem öll ál framleiðsla Norðuráls hefur verið flutt í gámum með áætlunarskipum Eimskips. Bæði félögin eru með metnaðarfullar áætlanir í umhverfismálum og styður samningurinn við þær. Það skiptir miklu að nýting flutningsgetu skipastólsins sé sem best, til að lágmarka kolefnisspor flutninga. Skipin sem flytja vörur Norðuráls og annan varning eins og sjávarafurðir á markaði erlendis snúa til baka með ýmsar vörur, t.d. ferskvöru, ávexti og grænmeti, en stór og öflug skip geta boðið upp á samkeppnishæfan flutningstíma við flug og minna kolefnisspor.

Sigrún Helgadóttir, framkvæmdastjóri Norðuráls Grundartanga, segir að við val á flutningafyrirtæki hafi meðal annars horft til framtíðarsýnar Eimskips í loftslagsmálum.

„Norðurál leggur mikla áherslu á að lágmarka kolefnisspor framleiðslu sinnar og er þá horft á alla virðis- og aðfangakeðjuna þar til varan er komin til viðskiptavinar. Til að ná því marki verður kolefnisspor á hverja flutta einingu að vera eins lágt og mögulegt er og ljóst að góð nýting skipa í áætlanaflutningum hefur jákvæð áhrif í þá veru. Við framleiðum nú þegar það ál sem hefur eitt minnsta kolefnisspor í heiminum og viljum minnka það enn frekar. Þessi samningur er skref í þá átt."

Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, er ánægður með að haldið verði áfram með gott og árangursríkt samstarf við Norðurál.

„Í sameiningu hafa félögin byggt upp góða þekkingu á flutningum á álsívalningum sem er ný vara hjá Norðuráli og þar kemur öflugt siglingarkerfi Eimskips og sérfræðiþekking starfsfólks á flóknum flutningum að góðum notum. Samningurinn endurspeglar sterka stöðu Eimskips í millilandaflutningum og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við Norðurál."