Á vef Fiskistofu er greint frá því að eftirlitsmenn stofnunarinnar muni fljúga ómönnuðum loftförum til eftirlits í nóvember. Stofnunin minnir á að allar upptökur verði skoðaðar og fiskur sem fari fyrir borð verði tegundargreindur. Fiskistofa biður sjómenn og útgerðaraðila að kynna sér vel reglur og lög um stjórn fiskveiða.

Í fréttinni kemur fram að óhætt sé að sleppa hlýra ef hann er lífvænlegur og skylt sé að sleppa beinhákarli, háfi og hámeri, ef lífvænleg. Þá er heimilt að sleppa lífvænlegri tindaskötu. Sleppa á grásleppu sem fæst í þorskfiskanet og heimilt er að sleppa lífvænlegum rauðmaga við hrognkelsaveiðar.

Komi lúða um borð í veiðiskip sem meðafli á umsvifalaust að sleppa lífvænlegri lúðu. Við línuveiðar skal sleppa allri lúðu með því að skera á taum línunnar.

Við handfæra- og sjóstangaveiðar á að losa lúðu varfærnislega af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð.